• mán. 28. ágú. 2023
  • Landslið

Miðar fyrir handhafa A og DE skírteina á landsleiki

Í samræmi við reglugerð KSÍ um aðgönguskírteini eiga handhafar A og DE skírteina rétt á miðum á alla leiki í mótum á vegum KSÍ og landsleiki KSÍ innanlands. Skírteinishafar sem vilja nýta sér þennan rétt og fá miða á leik Íslands og Bosníu Herzegóvínu í undankeppni EM 2024 geta nú sent tölvupóst á midasala@ksi.is og óskað eftir að fá miða. Athugið að takmarkað magn miða er í boði á hvern leik. Skírteinishafar geta óskað eftir að fá tvo aðra miða við hliðina á frímiðanum og er þá greitt fyrir þá miða fullu verði. Hægt er að óska eftir miðum til og með 7. september nk.