• fim. 07. des. 2006
  • Ársþing

61. ársþing KSÍ - 10. febrúar 2007

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

61. ársþing Knattspyrnusambands Íslands verður haldið á Hótel Loftleiðum laugardaginn 10. febrúar 2007. Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi efnisatriði tengd þinghaldinu:

Skuldir

Aðilar sem vanrækja uppgjör á gjöldum, sem greiða skal til KSÍ, missa rétt til þingsetu. Hjálagt er yfirlit yfir viðskiptastöðu félagsins hjá KSÍ. Þeim félögum sem skulda KSÍ er bent á að hafa tafarlaust samband við Pálma Jónsson, fjármálastjóra KSÍ.

Tillögur og málefni

Tillögur og málefni þau, er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi, skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi miðvikudaginn 10. janúar nk.

Gisting

Hótel Loftleiðir býður þingfulltrúum og þinggestum gistingu sem hér greinir:

Eins manns herbergi með morgunverð                 kr. 6.000.- pr. nótt

Tveggja manna herbergi með morgunverð          kr. 7.400.- pr. nótt

Sambandsaðilar skulu sjálfir panta herbergi í síma 444-4500 og þegar það er gert skal vísað til þess að það sé gert í tengslum við þingið.

Dagskrá

Þingið verður sett að morgni laugardaginn 10. febrúar og gert er ráð fyrir að því ljúki um kl. 16:00 sama dag. KSÍ býður þingfulltrúum til sameiginlegs kvöldverðar. Nákvæm dagskrá verður send sambandsaðilum síðar.

Fjöldi fulltrúa

Meðfylgjandi er listi yfir fjölda þingfulltrúa. Sambandsaðilar eru beðnir um að fara yfir listann og gera athugasemdir ef þörf krefur.

Fjöldi þingfulltrúa

Nánari upplýsingar um þingið og tillögur verða sendar til sambandsaðila í janúar, hálfum mánuði fyrir þing.