• mán. 08. jan. 2007
  • Ársþing

Kosningar í stjórn á 61. ársþingi KSÍ.

Stjórn KSÍ 2006
Stjorn

Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 12. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ minnst hálfum mánuði fyrir þing. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar.

Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:

  1. Kosning formanns annað hvert ár til tveggja ára í senn.
  2. Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára en fjórir menn ganga úr aðalstjórn á hverju ári.
  3. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.
  4. Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.
  5. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.

Eggert Magnússon var kjörinn formaður KSÍ til tveggja ára á 60. ársþingi KSÍ í febrúar 2006. Eggert Magnússon hefur hins vegar lýst því yfir að hann segi af sér sem formaður KSÍ á 61. ársþingi KSÍ sem fram fer 10. febrúar nk. Stjórn KSÍ hefur því ákveðið að kjör formanns fari fram á ársþinginu 10. febrúar nk. skv. 12. grein laga KSÍ.

Tilkynning um framboð til formanns skal berast skrifstofu KSÍ skriflega eigi síðar en 27. janúar nk.

Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 61. ársþingi KSÍ 10. febrúar nk.:

Í aðalstjórn

  • Halldór B. Jónsson, varaformaður - Reykjavík
  • Eggert Steingrímsson, gjaldkeri - Reykjavík
  • Ágúst Ingi Jónsson - Reykjavík
  • Björn Friðþjófsson - Dalvík

Tilkynning um framboð í aðalstjórn skal berast skrifstofu KSÍ skriflega eigi síðar en 27. janúar nk. Allir ofangreindir aðalstjórnarmenn gefa kost á sér til endurkjörs.

Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn: (Tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2008)

  • Jón Gunnlaugsson, ritari - Akranesi
  • Ástráður Gunnarsson - Reykjanesbæ
  • Ingibjörg Hinriksdóttir - Kópavogi
  • Lúðvík S. Georgsson - Reykjavík

Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 61. ársþingi KSÍ 10. febrúar nk.:

Aðalfulltrúar landsfjórðunga

  • Jakob Skúlason - Vesturland
  • Ómar Bragi Stefánsson - Norðurland
  • Guðmundur Ingvason - Austurland
  • Einar Friðþjófsson - Suðurland

Tilkynning um framboð í aðalfulltrúa landsfjórðunga skal berast skrifstofu KSÍ skriflega eigi síðar en 27. janúar nk. Allir ofangreindir aðalfulltrúar landsfjórðunganna gefa kost á sér til endurkjörs.

Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 61. ársþingi KSÍ 10. febrúar nk.:

Varamenn í aðalstjórn

  • Jóhannes Ólafsson - Vestmannaeyjum
  • Kjartan Daníelsson - Reykjavík
  • Þórarinn Gunnarsson - Reykjavík      

Allir varamenn í aðalstjórn gefa kost á sér til endurkjörs. 

Með tilkynningu um framboð er óskað eftir stuttri ferilskrá til birtingar á heimasíðu KSÍ.

Tillögum sem bera á upp á ársþinginu þarf að skila mánuði fyrir þingið og þurfa þær að berast í síðasta lagi 10. janúar.