• mán. 21. jan. 2008
  • Ársþing

Samþykkt stjórnar vegna kosninga á ársþingi

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

Á stjórnarfundi KSÍ, sem haldinn var 17. janúar síðastliðinn, kom fram að Halldór B. Jónsson hefur dregið sig úr stjórn KSÍ vegna veikinda.  Stjórn KSÍ samþykkti að kosning færi fram um sæti hans á næsta ársþingi.

Samþykktin var svohljóðandi:

" Halldór B Jónsson hefur ákveðið sökum veikinda að draga sig úr stjórn KSÍAf þeim sökum samþykkir stjórn KSÍ að fram skuli fara kosning um sæti hans og að kosið verði um það sérstaklega á komandi ársþingi KSÍ til eins árs.   Jafnframt samþykkir stjórn KSÍ að opið verði fyrir framboð í það sæti fram að kjöri.  Kosning fer fram að lokinni kosningu 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára.”