• fös. 01. feb. 2008
  • Ársþing

Ársreikningur KSÍ 2007 birtur

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

Knattspyrnusamband Íslands birtir nú ársreikning sinn fyrir árið 2007.  Heildartekjur KSÍ samstæðunnar voru 658,9 milljónir kr. og heildargjöld voru 592,3 milljónir kr. Hagnaður varð því 66,6 milljónir kr. 

Heildartekjur samstæðunnar voru um 25% umfram áætlun en rekstrargjöldin voru um 13% umfram áætlun.

Eins og mörg undanfarin ár voru fjármunatekjur stór liður í afkomu KSÍ. Á árinu 2007 námu þær 149,6 milljónum kr. en fjármagnsgjöld voru 10,6 milljónir kr.

Fjórða árið í röð voru lagðir fjármunir í sparkvallagerð vítt og breitt um landið. Á árinu 2007 voru lagðir 26 vellir og þá hafa alls verið lagðir 103 vellir. Kostnaður við sparkvallaátakið er nú alls rúmlega 255 milljónir króna.

Afkoma KSÍ samstæðunnar er mjög góð og eigið fé hennar var í lok árs 2007 orðið 347,2 milljónir kr.

Ársreikningur

Ársskýrsla KSÍ 2007

Hér að neðan má sjá ársskýrslu KSÍ fyrir starfsárið 2007.

Ársskýrsla

Fjárhagsáætlun KSÍ fyrir 2008

Hér að neðan má sjá fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2008.

Fjárhagsáætlun