• mán. 01. feb. 2010
  • Ársþing

Tillögur á ársþingi KSÍ 2010

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

Ársþing KSÍ, það 64. í röðinni, verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli 13. febrúar næstkomandi.  Hér að neðan má sjá þær tillögur er liggja fyrir þinginu sem og dagskrá þingsins sem sett verður kl. 11:00.

Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar og gögn:

1.         Tillögur

Hér að neðan má sjá þær tillögur sem borist hafa til KSÍ og teknar verða til afgreiðslu á ársþinginu.  Tillögurnar eru sendar bæði til héraðssambanda og íþróttabandalaga sem og til allra félaga sem hafa verið þátttakendur í knattspyrnumótum á vegum KSÍ sl. ár.  Þess er vænst að tillögunum sé komið sem fyrst til væntanlegra þingfulltrúa, þannig að þeir hafi tök á að kynna sér þær vel áður en á ársþing er komið.

7. –  Tillaga til lagabreytingar

8. –  Dómarar hjá karla- og kvennaflokkum

9. –  Röð liða í stigakeppni

10. – Varalið

11. – Bikarkeppni karla

12. – Bikarkeppni kvenna

13. – Knattspyrna 7 manna liða

14. – A dómarar í Pepsi deild kvenna

15. – Leikmannasamningar í 1. deild kvenna

16. – Skráning samninga

17. – Leikmannasamningar við fall um deild

18. – Innheimta félagaskiptagjalds

19. – Stuðlar leikmanna

20. – Stuðlar leikmanna

21. – Ályktun um jafnrétti

22. – Ályktun um skattamál

23. - Jafnréttisáætlun

2.         Kjörbréf

Hjálagt er kjörbréf til héraðssambanda og íþróttabandalaga og er þess óskað að þau verði fyllt út með nöfnum fulltrúa og varafulltrúa og afrit faxað til KSÍ í síðasta lagi 5. febrúar nk.  Óskað er eftir að allir aðilar tryggi að svo verði gert. Upplýsingar um fjölda fulltrúa er hér að neðan.

Fjöldi þingfulltrúa

3.         Dagskrá

Þingið verður sett kl. 11:00 laugardaginn 13. febrúar og gert er ráð fyrir að því ljúki um kl. 16:00 sama dag.  Öllum þingfulltrúum er hér með boðið til sameiginlegs kvöldverðar og skemmtunar sem hefst kl. 19:30 á Laugardalsvelli.

Öllum þingfulltrúum er hér með boðið að vera viðstaddir vígslu á styttu til minningar um Albert Guðmundsson, fyrsta atvinnumann Íslands í knattspyrnu, sem hefst kl. 18.30 við höfuðstöðvar KSÍ en að því loknu verður sameiginlegur kvöldverðar og skemmtun í boði KSÍ á Laugardalsvelli.  (Þingfulltrúum er boðið til kvöldverðar en félög geta keypt miða fyrir fleiri gesti.  Þingfulltrúar eru beðnir um að láta vita ef þeir mæta til kvöldverðar – hafið samband við Ragnheiði 510-2905, ragga@ksi.is).

Dagskrá

Kl. 10:00                    Afhending þinggagna

Kl. 11:00        1.         Þingsetning.

                        2.         Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.

                        3.         Kosning fyrsta og annars þingforseta.

                        4.         Kosning fyrsta og annars þingritara.

                        5.         Ávörp gesta.

                        6.         Álit kjörbréfanefndar.

                        7.         Lögð fram skýrsla fráfarandi stjórnar.

                        8.         Lagðir fram endurskoðaðir reikningar KSÍ til samþykktar.

                        9.         Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.

                        10.       Stjórn KSÍ leggur fram tillögu að fjárhagsáætlun fyrir  næsta starfsár.

                        11.       Tillögur um breytingar á lögum og reglugerðum teknar til afgreiðslu.        

                        12.       Tillögur um önnur mál sem borist hafa til stjórnar teknar til afgreiðslu.

                        13.       Önnur mál.

                        14.       Kosningar. Álit kjörnefndar.

                                   a. Kosning stjórnar.

                                               1. Kosning formanns (annað hvert ár).

                                                2. Kosning 4ra manna í aðalstjórn.

                                                3. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungum í stjórn.

                                                4. Kosning 3ja varamanna í aðalstjórn.

                                                5. Kosning 4ra varamanna úr landsfjórðungum í stjórn.

                                   b. Kosning fulltrúa á íþróttaþing ÍSÍ.

                                   c. Kosning skoðunarmanna reikninga (tveir aðalmenn og tveir                                                      varamenn).

d. Kosning í áfrýjunardómstól KSÍ (3 aðalmenn og 5 varamenn).

e. Kosning í leyfisráð KSÍ (5 menn).

f.  Kosning í leyfisdóm KSÍ (5 menn).

g. Kosning í aga- og úrskurðarnefnd KSÍ (8 menn).

h. Kosning kjörnefndar, 3ja mann, er starfi á milli þinga.

i.  Kosning endurskoðanda

j.  Kosning í siðanefnd KSÍ (2 menn, karl og kona)

15.       Fundargerð þingsins borin upp til samþykktar.

(Kl. 16:00)        16.       Þingslit.

Stutt hlé verður gert á störfum þingsins kl. 12:30 en þá býður KSÍ þingfulltrúum að þiggja veitingar.

Kl. 18:30  Vígsla á styttu af Alberti Guðmundssyni, fyrsta atvinnumanni Íslands í knattspyrnu.

Kl. 19:30  Kvöldverður og skemmtun í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli

4.         Skuldir

Sent hefur verið yfirlit yfir fjárhagslega stöðu aðildarfélaga gagnvart KSÍ miðað við 31. des. sl. Þau félög sem skulda eru beðin um að greiða skuldina eða semja um greiðslu hennar fyrir 10. febrúar nk. því eins og fram kemur í lögum KSÍ, geta þau félög sem skulda KSÍ ekki átt fulltrúa á ársþingi.

5.         Gisting

Hilton Nordica býður þingfulltrúum og þinggestum gistingu sem hér greinir:

Eins manns herbergi með morgunverð                kr. 9.900.- pr. nótt
Tveggja manna herbergi með morgunverð          kr. 12.900.- pr. nótt
 
Sambandsaðilar skulu sjálfir panta herbergi í síma 444-4000 eða á póstfang go@icehotels.is, þegar það er gert skal vísað til þess að það sé gert í tengslum við þingið.