• fim. 25. mar. 2010
  • Fræðsla
  • Dómaramál

Unglingadómaranámskeið á Þórshöfn

Dómaraflauta eða hljóðfæri?
domaraflauta

Unglingadómaranámskeið á verður haldið á Þórshöfn laugardaginn 27. mars   kl. 13:30.  Um að ræða tveggja og hálfs  tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.

Athugið að þetta er eina Unglingadómaranámskeiðið sem haldið verður á Norðausturlandi  í ár.

Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Námskeiðið er ókeypis.