• fim. 25. mar. 2010
  • Fræðsla
  • Dómaramál

Unglingadómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ - 8. apríl

Gylfi_Orrason_Breidablik_HK
Gylfi_Orrason_Breidablik_HK

 

Unglingadómaranámskeið verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 8. apríl kl. 18:00.  Um að ræða tveggja og hálfs  tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.

Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Námskeiðið er ókeypis.

Þetta verður síðasta unglingadómaranámskeiðið sem haldið verður á höfuðborgarsvæðinu á þessu vori.