• þri. 14. jan. 2014
  • Ársþing

Kosningar á 68. ársþingi KSÍ

KR Íslandsmeistari 2013

Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi 1. febrúar nk. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests. 

Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:

a.    Kosning formanns annað hvert ár til tveggja ára í senn.

b.    Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára en fjórir menn ganga úr aðalstjórn á hverju ári.

c.    Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.

d.    Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.

e.    Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.

Kosning formanns

Geir Þorsteinsson var kjörinn formaður KSÍ til tveggja ára á 67. ársþingi KSÍ í febrúar 2013. Tveggja ára kjörtímabili Geirs sem formanns lýkur á 69. ársþingi KSÍ árið 2015.

Kosning í aðalstjórn

Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 68. ársþingi KSÍ 15. febrúar nk.:

Í aðalstjórn

Gísli Gíslason                               Akranesi

Lúðvík S Georgsson, ritari            Reykjavík

Ragnhildur Skúladóttir                   Reykjavík

Rúnar Arnarson                             Reykjanesbæ

Gísli Gíslason, Ragnhildur Skúladóttir og Rúnar Arnarson gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Lúðvík S Georgsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs.

Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2015):

Gylfi Þór Orrason, varaformaður     Reykjavík

Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri     Reykjavík

Róbert Agnarsson                            Reykjavík

Vignir Már Þormóðsson                   Akureyri

Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga

Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 68. ársþingi KSÍ 15. febrúar nk.:

Aðalfulltrúar landsfjórðunga

Jakob Skúlason                           Vesturland

Björn Friðþjófsson                        Norðurland

Valdemar Einarsson                     Austurland

Tómas Þóroddsson                      Suðurland

Allir ofangreindir fulltrúar gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn sem aðalfulltrúar landsfjórðunga. 

Kosning varamanna í aðalstjórn

Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 68. ársþingi KSÍ 15. febrúar nk.:

Varamenn í aðalstjórn

Jóhannes Ólafsson                      Vestmannaeyjum

Jóhann Torfason                          Ísafirði

Þórarinn Gunnarsson                   Reykjavík     

Allir ofangreindir gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem varamenn í aðalstjórn.

Með tilkynningu um framboð er óskað eftir stuttri ferilskrá til birtingar á heimasíðu KSÍ.