• lau. 01. feb. 2014
  • Ársþing

Tillögur á 68. ársþingi KSÍ

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

68. ársþing KSÍ verður haldið í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri, 15. febrúar nk. Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar og gögn:

1.         Tillögur

Hér að neðan má sjá tillögur sem KSÍ hefur borist og teknar verða til afgreiðslu á ársþinginu. Tillögurnar eru sendar bæði til héraðssambanda og íþróttabandalaga sem og til allra félaga sem hafa verið þátttakendur í knattspyrnumótum á vegum KSÍ sl. ár. Þess er vænst að tillögunum sé komið sem fyrst til væntanlegra þingfulltrúa, þannig að þeir hafi tök á að kynna sér þær vel áður en á ársþing er komið.

7.  Lagabreytingartillaga - Fulltrúar á ársþingi

8.  Lagabreytingartillaga - Fjölgun liða í efstu deild kvenna

9.  Breyting á reglugerð um knattspyrnumót - Aldursflokkaskipting 2. flokkur kvenna

10. Breyting á reglugerð um knattspyrnumót - Aldursflokkaskipting 3. flokkur kvenna

11. Breyting á reglugerð um knattspyrnumót - Bikarkeppni karla

12. Breyting á reglugerð um aðgönguskírteini

13. Stofnun vinnuhóps - Félagaskipti og samningar

14. Stofnun vinnuhóps - Jöfnun ferðakostnaðar

15. Stofnun vinnuhóps - Uppaldir leikmenn

16. Ályktunartillaga til stjórnar KSÍ - Ákvæði um leikjaálag

2.         Kjörbréf

Kjörbréf verða send til héraðssambanda og íþróttabandalaga og er þess óskað að þau verði fyllt út með nöfnum fulltrúa og varafulltrúa og afrit faxað til KSÍ í síðasta lagi 10. febrúar nk. Óskað er eftir að allir aðilar tryggi að svo verði gert. Upplýsingar um fjölda fulltrúa má sjá hér að neðan.

Fjöldi þingfulltrúa

3.         Dagskrá

Þingið verður sett kl. 11:00 laugardaginn 15. febrúar og gert er ráð fyrir að því ljúki um kl. 16:00 sama dag. Öllum þingfulltrúum er hér með boðið til sameiginlegs kvöldverðar og skemmtunar sem hefst kl. 19:00 Í Hofi.  Á undan verður boðið upp á fordrykk frá kl. 18:00 á sama stað. (Þingfulltrúum er boðið til kvöldverðar en félög geta keypt miða fyrir fleiri gesti, hafið samband við Ragnheiði 510-2905, ragnheidur@ksi.is).

4.         Skuldir

Hjálagt er yfirlit yfir fjárhagslega stöðu aðildarfélagsins gagnvart KSÍ miðað við 31. des. sl. Þau félög sem skulda eru beðin um að greiða skuldina eða semja um greiðslu hennar fyrir 10. febrúar nk. því eins og fram kemur í lögum KSÍ, geta þau félög sem skulda KSÍ ekki átt fulltrúa á ársþingi.

5.         Gisting

Icelandair Hótel Akureyri býður þingfulltrúum og þinggestum gistingu sem hér greinir:

  • Eins manns herbergi með morgunverði                            kr. 13.400.- pr. nótt
  • Tveggja manna herbergi með morgunverði                      kr. 15.500.- pr. nótt

Sambandsaðilar skulu sjálfir panta herbergi í síma 518-1000, þegar það er gert skal vísað til þess að það sé gert í tengslum við þingið.