• fös. 07. feb. 2014
  • Ársþing

Góður árangur landsliða leiðir til aukinna útgjalda

Gylfi-Sig

Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) birtir nú ársreikning sinn fyrir árið 2013.  Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2013 námu 972 milljónum króna samanborið við 842 milljónir króna á árinu 2012. Hækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af auknu framlagi frá UEFA og auknum sjónvarpstekjum. 

Rekstrarkostnaður KSÍ var um 928 milljónir króna og var umtalsvert hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Ástæður þess eru fyrst og fremst aukinn kostnaður við landsliðsverkefni sem voru mun fleiri á árinu en gert var ráð fyrir auk þess sem móta- og fræðslukostnaður varð meiri vegna aukinnar starfsemi.  

Rekstrarhagnaður ársins nam tæpum 44 milljónum króna, en áætlanir gerðu ráð fyrir 60 milljóna króna hagnaði. Að teknu tilliti til fjármagnsliða var hagnaður af starfsemi KSÍ 57 milljónir króna.

Styrkir og framlög til aðildarfélaga á árinu námu 85 milljónum króna vegna barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira. Samþykkt áætlun gerði ráð fyrir styrkjum og framlögum að fjárhæð 78 milljónum. Að teknu tilliti til styrkja og framlaga til aðildarfélaga var því tap á rekstinum að upphæð 28 milljónir króna.

Fjárhags- og eignastaða KSÍ er traust við áramót og lausafjárstaða góð. Handbært fé lækkar á milli ára og var í árslok 2013 um 299 milljónir króna. Eignir námu 762 milljónum króna. Eigið fé KSÍ var ríflega 200 milljónir króna í árslok.

Ársreikningur KSÍ

Ársskýrsla 2013

Hér að neðan má ársskýrslu KSÍ fyrir starfsárið 2013

Ársskýrsla stjórnar KSÍ

Fjárhagsáætlun 2014

Hér að neðan má sjá fjárhagsáætlun KSÍ fyrir starfsárið 2014

Fjárhagsáætlun KSÍ 2014