• lau. 15. feb. 2014
  • Ársþing

68. ársþingi KSÍ lokið

Stjórn KSÍ kjörin á ársþingi 2014
Stjorn-KSI-2014

Rétt í þessu var 68. ársþingi KSÍ að ljúka en það var haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.  Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sleit þinginu um kl. 16:00 og má sjá fréttir af afgreiðslu tillagna hér og aðrar fréttir af þinginu er hægt að finna hér.

Kosning í aðalstjórn

Kosið var um fjögur sæti í aðalstjórn KSÍ og hlutu eftirfarandi kosningu:

  • Gísli Gíslason Akranesi
  • Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
  • Ragnhildur Skúladóttir Reykjavík
  • Rúnar Arnarson Reykjanesbæ

Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2015):

  • Gylfi Þór Orrason, varaformaður Reykjavík
  • Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri Reykjavík
  • Róbert Agnarsson Reykjavík
  • Vignir Már Þormóðsson Akureyri

Aðalfulltrúar landsfjórðunga voru kosnir:

  • Jakob Skúlason Vesturland
  • Björn Friðþjófsson Norðurland
  • Valdemar Einarsson Austurland
  • Tómas Þóroddsson Suðurland

Varamenn í aðalstjórn voru kosnir:

  • Ingvar Guðjónsson Grindavík
  • Jóhann Króknes Torfason Ísafirði
  • Þórarinn Gunnarsson Reykjavík

Stjórn KSÍ kjörin á ársþingi 2014

Myndir af þinginu