• lau. 15. feb. 2014
  • Ársþing

Guðmundur Benediktsson fékk viðurkenningu

Knattspyrnusamband Íslands
ksi-merki

Guðmundur Benediktsson hlaut fjölmiðlaviðurkenningu á 68. ársþingi KSÍ sem fram fer á Akureyri.  Guðmundur fær verðlaunin fyrir að hafa glætt útvarpslýsingar frá fótboltaleikjum nýju lífi með eftirminnilegum hætti, svo eftir hefur verið tekið. Lýsingar hans eru lifandi, hrífandi, hnyttnar, áhugaverðar, spennandi og dramatískar.