• fös. 12. des. 2014
  • Ársþing

69. ársþing KSÍ verður haldið á Hilton Nordica 14. febrúar

KSI-MERKI-PNG

69. ársþing KSÍ verður haldið á Hilton Nordica, Reykjavík 14. febrúar nk. Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar:

1.            Skuldir

Aðilar sem vanrækja uppgjör á gjöldum sem greiða skal til KSÍ missa rétt til þingsetu.  Þeim félögum sem skulda KSÍ er bent á að hafa tafarlaust samband við Pálma Jónsson, fjármálastjóra KSÍ.

2.            Tillögur og málefni

Tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi miðvikudaginn 14. janúar nk.

3.            Gisting

Hilton Nordica býður þingfulltrúum og þinggestum gistingu sem hér greinir:

Eins manns herbergi með morgunverði                 kr. 15.600.- pr. nótt
Tveggja manna herbergi með morgunverði                         kr. 18.600.- pr. nótt

Sambandsaðilar skulu sjálfir panta herbergi í síma 444-4000 eða á póstfang go@icehotels.is, þegar það er gert skal vísað til þess að það sé gert í tengslum við þingið.

4.            Dagskrá

Þingið verður sett að morgni laugardaginn 14. febrúar og er gert ráð fyrir að því ljúki um kl. 16:00 sama dag.  KSÍ býður þingfulltrúum til sameiginlegs kvöldverðar. 

Nákvæm dagskrá verður send sambandsaðilum síðar.

5.            Fjöldi fulltrúa

Að neðan er listi yfir fjölda þingfulltrúa. Sambandsaðilar eru beðnir um að fara yfir listann og gera athugasemdir ef þörf krefur.

Nánari upplýsingar um þingið og tillögur verða sendar til sambandsaðila í janúar, hálfum mánuði fyrir þing.

Fjöldi þingfulltrúa