• mán. 26. jan. 2015
  • Ársþing

Tilnefningar óskast vegna jafnréttisviðurkenningar KSÍ 2014

Arsthing-KSI-2014---Dalvik---jafnrettisvidurkenning

Framkvæmdanefnd um jafnréttisáætlun óskar eftir tilnefningum fyrir jafnréttisviðurkenningu KSÍ árið 2014. Ítrekað er að þessi verðlaun tengjast ekki eingöngu jafnrétti kynjanna heldur jafnrétti í víðasta skilningi. 

Tilnefningar gætu til dæmis tengst bættri umgjörð fyrir konur í fótbolta, aðgerðum til að minnka brottfall minnihlutahópa, aðgerðum til að auka áhuga almennings á knattspyrnu kvenna, aðgerðum til að jafna aðgang minnihlutahópa að íþróttafélögum, aukin fjölmiðlaumfjöllun um konur eða minnihlutahópa í íþróttum o.s.frv.

Tilnefningar skulu sendar í tölvupósti á klara@ksi.is, fyrir 10. febrúar næstkomandi.  Viðurkenningin verður afhent á ársþingi KSÍ þann 14. febrúar næstkomandi.