• lau. 14. feb. 2015
  • Ársþing

KR og ÍA fengu  Dragostytturnar

IA-Drago

KR og ÍA fengu Dragostytturnar á 69. ársþingi KSÍ sem haldið er Hótel Nordica Reykjavík.  Þá fengu Fjarðabyggð, Höttur og KFG viðurkenningar fyrir prúðmannlegan leik í 2., 3. og 4. deild karla. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna viðurkenninguna.

Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna.  Þá eru veittar sérstakar viðurkenningar í 2., 3. og 4. deild karla og er stuðst við sömu forsendur og í efstu tveimur deildunum.