• mán. 21. feb. 2022
  • Ársþing

36 félög hafa skilað kjörbréfi fyrir ársþing KSÍ

Af þeim 70 félögum sem eiga rétt á að senda fulltrúa á 76. ársþing KSÍ hafa 36 þeirra nú þegar skilað kjörbréfi. Félög eru hvött til að skila kjörbréfum sem fyrst en leiðbeiningar um útfyllingu og innsendingu kjörbréfa hafa verið sendar til allra aðildarfélaga. Félög sem ekki hafa fengið send kjörbréf eða vantar aðstoð við útfyllingu þeirra geta sent tölvupóst á oskar@ksi.is eða kolbrun@ksi.is

Nánar um stöðu kjörbréfa

  • 70 félög eiga rétt á að senda fulltrúa á 76. ársþing KSÍ - samtals 148 þingfulltrúar
  • 36 félög hafa skilað kjörbréfum nú þegar - samtals 75 þingfulltrúar
  • 34 félög hafa ekki enn skilað kjörbréfum - samtals 73 þingfulltrúar