• lau. 25. mar. 2023
  • Landslið
  • U17 karla

U17 karla - jafntefli gegn Wales

U17 karla gerði 1-1 jafntefli gegn Wales í milliriðlum undankeppni EM 2023.

Þetta var annar leikur liðsins í riðlinum, en liðið gerði markalaust jafntefli við Svartfjallaland í þeim fyrsta. Wales er í efsta sæti riðilsins með fjögur stig, Skotland í öðru með þrjú stig, Ísland í þriðja með tvö stig og Svartfjallaland í því neðsta án stiga.

Þau lið sem vinna sína riðla fara áfram í lokakeppnina ásamt þeim sjö af átta liðum með bestan árangur í öðru sæti.