• fös. 19. jún. 2009
  • Fræðsla
  • Knattþrautir KSÍ

Knattþrautirnar hefjast á mánudaginn

Þjálfari að störfum
lidsheild4

Eins og áður hefur komið fram verður KSÍ með knattþrautir fyrir 5. flokk karla og kvenna í sumar og mun Gunnar Einarsson hafa yfirumsjón með þeim.  Hann mun heimsækja félögin og fara yfir knattþrautirnar með iðkendum og þjálfurum.

Yfirferð Gunnars hefst núna á mánudaginn, 22. júní en þá verður hann á Patreksfirði.

Dagskrá næstu daga er eftirfarandi:

  • Mánudagur   22. júní  Patreksfjörður
  • Þriðjudagur   23. júní  Ísafjörður
  • Miðvikudagur 24. júní  Fram 5. flokkur karla og kvenna
  • Fimmtudagur 25. júní  Haukar 5. flokkur karla

Félögin eru beðin um að kynna sér nánar dagskrána á viðkomandi stað og koma henni til sinna iðkenda og þjálfara.  Einnig eru þjálfarar hvattir til þess að kynna sér knattþrautirnar á bæklingum er félögin frá send.

Knattþrautir KSÍ 2009