• fim. 13. ágú. 2009
  • Dómaramál

Fara á námskeið um "fimm dómara kerfið"

Merki Evrópudeildar UEFA
Europa-League-logo_UEFA

Kristinn Jakobsson, FIFA-dómari, og Guðmundur Ingi Jónsson, dómaraeftirlitsmaður, munu sækja námskeið á vegum UEFA 24. ágúst.  Efni námskeiðsins er hið svokallaða "5 dómara kerfi" sem prófa á í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA í haust.

Alls eru 48 dómarar og 48 dómaraeftirlitsmenn boðaðir á námskeiðið, sem haldið er í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss.