• fim. 13. ágú. 2009
  • Dómaramál

Íslenskur dómarakvartett í Evrópudeild UEFA

Evrópudeildin
Europa-League-logo

Íslenskur dómarakvartett verður á leik austurríska liðsins FK Austria Wien og FC Metallurh Donetsk frá Úkraínu.  Um er að ræða síðari viðureign liðanna í umspili fyrir riðlakeppni Evrópudeildar UEFA.  Leikurinn fer fram á Franz Horr-leikvanginum í Vín.

Dómari leiksins verður Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar þeir Sigurður Óli Þórleifsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson, og fjórði dómari verður Jóhannes Valgeirsson.  Eftirlitsmaður leiksins kemur frá Möltu og heitir Carmelo Bartolo.

 

 Kristinn Jakobsson Jóhannes Valgeirsson     
     
 Sigurður Óli Þorleifsson  Gunnar Sverrir Gunnarsson