• þri. 25. ágú. 2009
  • Dómaramál

Kristinn dæmir í Evrópudeildinni í Austurríki

Kristinn Jakobsson
Kristinn_Jakobsson_2008

Kristinn Jakobsson mun næstkomandi fimmtudag dæma leik Austria Vín frá Austurríki og Metallurh Donetsk frá Úkraínu en leikið verður í Vín.  Leikurinn er í Evrópudeild UEFA og er seinni viðureign liðanna en fyrri leiknum í Úkraínu lauk með jafntefli, 2 - 2.

Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson og fjórði dómari verður Jóhannes Valgeirsson.

Kristinn er einmitt staddur núna í Sviss en þar sækir hann námskeið UEFA um fimm dómara kerfið sem UEFA hefur verið að þróa.  Ásamt Kristni er Ingi Jónsson, eftirlitsmaður, á þessu námskeiði.