• fös. 09. mar. 2012
  • Dómaramál

Fræðslufundur um dómgæslu á Reyðarfirði

Kristinn Jakobsson
Kristinn_Jakobsson_2008

Kristinn Jakobsson, FIFA dómari, dæmir leik Hattar og Fjölnis þann 17. mars n.k. kl. 14:00 í Fjarðarbyggðarhöllinni.  Í tengslum við leikinn verður fræðslufundur í Grunnskólanum á Reyðarfirði  þar sem Kristinn mun ásamt reyndum aðstoðardómara fara yfir helstu þætti dómgæslunnar.

Hér er kjörið tækifæri fyrir dómara og áhugamenn um dómgæslu að auka við þekkingu sína.

Dagskrá

  • 12:00-13:30  Fræðslufundur í barnaskólanum á Reyðarfirði.
  • 14:00-15:45  Horft á leik Hattar og Fjölnis. Leiðbeinandi greinir leikinn meðan á honum stendur.
  • 16:00-17:00  Leikurinn gerður upp. Kristinn situr fyrir svörum.
  • 17:00  Dagskrárlok.

Allir starfandi dómarar og áhugamenn um dómgæslu eru hvattir til þess að mæta.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is

Dómarar leiða lið Þýskalands og Englands til vallar fyrir úrslitaleik EM U19 kvenna á Íslandi