• mán. 12. mar. 2012
  • Dómaramál

Málþing um íþróttadómara miðvikudaginn 21. mars

Dómaraflauta eða hljóðfæri?
domaraflauta

 

ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar.  Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur.  Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir.  Það verður haldið í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal kl. 17.00-20.00  Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.

  • Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum?
  • Hver er áhrifamáttur og ábyrgð þjálfara og fjölmiðla?
  • Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi?
  • Yfrir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir?
  • Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt?

Þessum spurningum verður reynt að svara á málþinginu, m.a. í vinnuhópum þar sem allir hafa möguleika á þátttöku.

Niðurstöður hópavinnunnar verða birtar eftir að hópavinnu lýkur.

Forystumenn þessa málaflokks hjá ofangreindum sérsamböndum verða í panel í lok málþingsins.

Skráning er í síma 514-4000 eða á linda@isi.is  Í boði verður kaffi og léttar veitingar.

Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is