• fim. 15. mar. 2012
  • Dómaramál

Unglingadómaranámskeið í Verkmenntaskóla Austurlands 22. mars - Frestað

Þróttur
trottur_nes_740

 

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Þrótt Neskaupstað í Verkmenntaskóla Austurlands á Norðfirði fimmtudaginn 22. mars og hefst kl. 17:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is

Allir sem náð hafa 15 ára aldri eru velkomnir á námskeiðið.