• mán. 19. mar. 2012
  • Dómaramál

Héraðsdómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ 26. mars

Dómaraflauta eða hljóðfæri?
domaraflauta

Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni, 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ, mánudaginn 26. mars kl. 19:00.  Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara.

Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.  Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis.

Lögð er áhersla á praktísku hliðar dómgæslunnar.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is