• fim. 14. feb. 2013
  • Dómaramál

Unglingadómaranámskeið í Borgarnesi þriðjudaginn 19. febrúar

Dómaraflauta eða hljóðfæri?
domaraflauta

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Skallagrím og hefst kl. 18:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is