• þri. 19. feb. 2013
  • Dómaramál

Unglingadómaranámskeið KSÍ á Selfossi í Iðu þriðjudaginn 26. febrúar

umf_selfoss_logo
umf_selfoss_logo

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við knattspyrnudeild Selfoss og hefst kl. 19:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. 

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar eða eftir samkomulagi.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is.

Þetta er eina unglingadómaranámskeiðið sem haldið verður á Suðurlandi á árinu.