• mán. 04. mar. 2013
  • Dómaramál

Þóroddur og Birkir dæma á Regions Cup

uefa-logo-biglandscape
uefa-logo-biglandscape

Þóroddur Hjaltalín og Birkir Sigurðarson verða á San Marínó næstu dag þar sem þeir dæma á UEFA Regions Cup.  Um er að ræða keppni áhugamannaliða á vegum UEFA en leikið er í riðlakeppni núna áður en úrslitakeppnin fer fram á Ítalíu í sumar.

Auk heimamanna verða lið frá Englandi, Norður Írlandi og Írlandi og fara fyrstu leikirnir fram miðvikudaginn 6. mars.