• mán. 03. jún. 2013
  • Dómaramál

Jóhann Gunnar að störfum í Ísrael

Jóhann Gunnar Guðmundsson
Johann-Gunnar

Jóhann Gunnar Guðmundsson verður næstu daga að störfum í Ísrael þar sem hann starfar í úrslitakeppni EM U21 karla.  Keppnin fer fram dagana 5. - 18. júní en Jóhann verður fjórði dómari á opnunarleik keppninnar, Ísrael - Noregur. 

Í A-riðli leika einnig, auk ofangreindra þjóða, England og Ítalía.  Í B-riðli leika svo Þýskaland, Holland, Rússland og Spánn.

Keppnin á uefa.com