• mán. 30. mar. 2015
  • Dómaramál

Héraðsdómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 9. apríl

football-referee-equipment

Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 9. apríl kl. 18:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. 

Kristinn Jakobsson fyrrverandi FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu. Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis. Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar. 

Skráning er hafin á magnus@ksi.is