• fim. 31. mar. 2016
  • Dómaramál

Helgi Mikael og Tómas Orri til Englands

Helgi-Mikael

Helgi Mikael Jónasson og Tómas Orri Hreinsson halda til Englands í vikunni þar sem þeir munu m.a. fylgjast með undirbúningi dómara í ensku úrvalsdeildinni. 

Þeir munu einnig starfa á leikjum í U21 deildinni í Englandi sem og sækja ráðstefnu úrvaldsdeildardómara og aðstoðardómara. Helgi mun dæma leik Leicester og Liverpool og Tómas leik WBA og Aston Villa. 

Ferð félaganna er hluti af samstarfi knattspyrnusambanda Íslands og Englands í dómaramálum en undanfarin ár hafa íslenskir dómarar fengið fræðslu og reynslu í Englandi sem og að enskir dómarar hafa komið hingað til að dæma í deildarkeppninni.