• fim. 31. mar. 2016
  • Dómaramál

Síðasta byrjendanámskeið í Reykjavík

Domari-2015

Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ, fimmtudaginn 7. apríl. Námskeiðið er það síðasta sem haldið verður í Reykjavík að þessu sinni.

Í október verður síðan aftur farið af stað með námskeiðahald hjá þeim félögum sem þess óska. 

Námskeiðið er haldið af KSÍ í hefst kl. 17:30. 

Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar. Námskeiðið er ókeypis. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 

Skráning er hafin á magnus@ksi.is