• fös. 20. maí 2016
  • Dómaramál

Gunnar Jarl 4. dómari á úrslitaleik EM U17 karla

Dómarateymið á úrslitaleik EM U17 karla 2016
2366733_w2

 Gunnar Jarl Jónsson milliríkjadómari, sem er við störf fyrir UEFA í úrslitakeppni EM U17 landsliða karla í Aserbaídsjan um þessar mundir, hefur verið valinn í dómarateymi úrslitaleiks mótsins, milli Spánar og Portúgals, sem fram fer á laugardag.

Gunnar verður 4. dómari á leiknum, sem fram fer á 8KM Stadium í Baku.  Dómari leiksins er Petr Ardeleanu frá Tékklandi og aðstoðardómarar þeir Balázs Buzás frá Ungverjalandi og Ceyhun Sesigüzel frá Tyrklandi.

Dómarateymið á úrslitaleik EM U17 karla 2016