• mið. 25. maí 2016
  • Dómaramál

Þóroddur á CORE námskeiði í Sviss

Þóroddur Hjaltalín
Thoroddur-Hjaltalin

Þóroddur Hjaltalín er um þessar mundir staddur í Nyon í Sviss þar sem hann er á svokölluðu CORE dómaranámskeiði.  Þetta er námskeið, haldið af UEFA, fyrir FIFA dómara til að undirbúa þá fyrir alþjóðleg verkefni.

Alls eru 35 dómarar á þessu námskeiði frá ýmsum Evrópulöndum og fer það fram bæði í formi fyrirlestra sem og verklegra æfinga.  Einnig er unnið með líkamlega þáttinn og gangast þátttakendur undir þolpróf á námskeiðinu.

Fyrirlesarar og kennarar á námskeiðinu koma úr fremstu röð og má t.a.m nefna þar David Ellleray og Dagmar Damkova.