• mið. 18. jan. 2017
  • Dómaramál

Byrjendanámskeið fyrir dómara þriðjudaginn 24. janúar kl. 20:00

UMFA

Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Aftureldingu í Varmárskóla (yngri deild) þriðjudaginn 24. janúar kl. 20:00. 

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Aftureldingu og hefst kl. 20:00. Námskeiðið stendur í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. 

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi. Námskeiðið er ókeypis. 

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 100% viðvera á námskeiði skilyrði.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is