• þri. 06. feb. 2018
  • Dómaramál

Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Aftureldingu þriðjudaginn 13. febrúar

Dómari

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Aftureldingu og hefst kl. 20:00. Námskeiðið stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. 

Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi. Námskeiðið er ókeypis. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 100% viðvera á námskeiði skilyrði. 

Námskeiðið fer fram í stofu 116 í Varmárskóla.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is