• þri. 06. mar. 2018
  • Dómaramál

Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá ÍR þriðjudaginn 13. mars

Dómari

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við ÍR og hefst kl. 19:30. Námskeiðið stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. 

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. 

Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi. 

Námskeiðið er ókeypis. 

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 

100% viðvera á námskeiði skilyrði. 

Skráning er hafin á magnus@ksi.is