• fös. 23. mar. 2018
  • Dómaramál

Fjórða leikmannaskiptingin leyfð í framlengingu

Valgeir Valgeirsson kastar upp peningi, Reynir Leósson og Guðmundur Steinarsson fylgjast spenntir með
Valgeir-Valgeirs--Fram--Keflavik

Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda (IFAB) hefur nýlega samþykkt breytingar á knattspyrnulögunum og er ætlunin að þær taki gildi fyrir komandi keppnistímabil hér á landi. Ísland er þar með, nú sem oft áður, fyrst þjóða til að taka breytingarnar til framkvæmda. 

Stærsta breytingin varðar svokalla VAR-dómgæslu þar sem notaðar eru myndbandsupptökur til að taka ákvarðanir í mikilvægum atvikum. Þá verður leyfð fjórða leikmannaskiptingin í framlengingu. Gylfi Þór Orrason fyrrverandi FIFA dómari og fyrrum formaður dómaranefndar KSÍ fjallar um breytingarnar í meðfylgjandi pistli sínum. 

Pistill