• þri. 17. ágú. 2021
  • Mótamál
  • Evrópuleikir

Valur úr leik í Meistaradeild kvenna

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur er úr leik í Meistaradeild kvenna eftir 0-1 tap gegn Hoffenheim, en leikið var á Stadion Letzigrund í Zürich.

Hoffenheim mætir nú AC Milan í leik um laust sæti í næstu umferð keppninnar á meðan Valur og FC Zürich Frauen mætast í leik um 3. sæti riðilsins.

Ásamt Val leikur Breiðablik einnig í undankeppni Meistaradeildarinnar og mætir liðið KÍ frá Færeyjum á miðvikudaginn 18. ágúst. Takist Blikum að sigra KÍ mun liðið mæta Gintra frá Litháen eða Flora Tallin frá Eistlandi í leik um sæti í næstu umferð.