• fim. 19. ágú. 2021
  • Mótamál
  • Evrópuleikir

Valur mætir FC Zurich á föstudag í Meistaradeild kvenna

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur mætir FC Zurich á föstudag í leik um 3. sæti síns riðils í Meistaradeild kvenna.

Leikurinn hefst kl. 12:00 og fer fram á Stadion Letzigrund í Zurich. Valur tapaði 0-1 gegn Hoffenheim á þriðjudag á meðan FC Zurich tapaði 1-2 gegn AC Milan. 

Hoffenheim og AC Milan mætast svo síðar um daginn, kl. 18:00, í leik um laust sæti í næstu umferð keppninnar.