• fim. 20. júl. 2023
  • Mótamál
  • Evrópuleikir

Víkingur og KA spila í Sambandsdeildinni í kvöld

Mynd: Mummi Lú

Víkingur og KA spila síðari leiki sína í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar í kvöld.

KA heimsækir Connah's Quay Nomads til Wales eftir 2-0 sigur á heimavelli, á meðan Víkingur R. tekur á móti lettneska stórliðinu Riga FC, sem vann fyrri leikinn 2-0.

Sigurvegarinn úr viðureigninni í Wales mætir annað hvort Dundalk frá Írlandi eða Magpies frá Gíbraltar í næstu umferð.

Sigurvegarinn úr Víkinni mætir Kecskeméti TE, sem endaði í öðru sæti ungversku deildarinnar í vor.

Leikir kvöldsins:

18:00 Connah's Quay Nomads - KA (0-2) (Stöð2Sport5)
18:45 Vikingur R. - Riga (0-2) (Stöð2Sport)