• fös. 21. júl. 2023
  • Mótamál
  • Evrópuleikir

KA áfram í Sambandsdeildinni en Víkingur úr leik

Mynd: Mummi Lú

Tvö íslensk lið spiluðu í Sambandsdeild Evrópu í gær, fimmtudag. 

KA vann 2-0 sigur gegn Connah's Quay Nomads þar sem Daníel Hafsteinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson skoruðu mörk KA manna. KA er því komið áfram í 2. umferð keppninnar eftir samtals 4-0 sigur. KA mætir Dundalk frá Írlandi í næstu umferð. Þann 27. júlí spila þeir á heimavelli sem er heimavöllur Fram og útileikurinn fer fram þann 3. ágúst.

Víkingur R. er úr leik í Sambandsdeildinni þrátt fyrir 1-0 sigur í Víkinni í gær. Helgi Guðjónsson skoraði mark Víkinga á 82. mínútu. Víkingar töpuðu 2-0 ytra og því samtals 2-1.