• sun. 24. sep. 2023
  • Landslið
  • U19 kvenna

U19 kvenna - Ísland mætir Noregi á mánudag

U19 kvenna mætir Noregi á mánudag í síðari vináttuleik liðsins í æfingaferð sinni til Noregs.

Ísland tapaði 2-3 gegn Svíþjóð í fyrri leik sínum í ferðinni. Leikurinn á mánudag gegn Noregi hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma og verður hann hægt að sjá hann í beinu streymi. Hlekk á streymið má finna hér að neðan.

Beint streymi

Þessir tveir vináttuleikir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2024 sem hefst í október. Þar er Ísland í riðli með Skotlandi, Belarús og Serbíu, en leikið verður í Albaníu.