• fös. 06. okt. 2023
  • Mótamál
  • Besta deildin

Bestar og efnilegastar í Bestu deild kvenna

Í dag, föstudag, fer fram lokaumferðin í Bestu deild kvenna þar sem Valur tekur á móti Íslandsmeistaraskildinum. Eins og undanfarin ár velja leikmenn í Bestu deildinni besta og efnilegasta leikmann deildarinnar ásamt því að velja besta dómarann. Í fyrra var bryddað upp á þeirri nýjung að afhjúpa hvaða fjórir leikmenn voru efstir í kjörinu áður en lokaumferðin fer fram og ákveðið var að gera það einnig í ár. Hér að neðan má finna nöfn þeirra leikmanna sem voru efstir eftir að kosningu lauk (nöfn leikmanna eru í stafrófsröð).  Öll verðlaunin verða afhent í aðdraganda leikja kvöldsins.

Besti leikmaður Bestu deildar kvenna (efstu fjórar)

  • Arna Sif Ásgrímsdóttir - Valur
  • Bryndís Arna Níelsdóttir - Valur
  • Katherine Amanda Cousins - Þróttur
  • Sandra María Jessen - Þór/KA

Efnilegasti leikmaður Bestu deildar kvenna (efstu fjórar)

  • Fanney Inga Birkisdóttir - Valur
  • Ísabella Sara Tryggvadóttir - Valur
  • Katla Tryggvadóttir - Þróttur
  • Sædís Rún Heiðarsdóttir - Stjarnan

Verðlaun til besta og efnilegasta leikmanns efstu deildar kvenna, „Flugleiðahornin“, voru fyrst afhent 1994. Þá var Katrín Jónsdóttir valin efnilegasti leikmaðurinn og Margrét Ólafsdóttir valin besti leikmaður deildarinnar.