• mið. 20. feb. 2008
  • Leyfiskerfi

Blikar skila fjárhagsgögnum

Breiðablik
Breidablik

Breiðablik hefur nú skilað fjárhagslegum leyfisgögnum sínum og eru Blikar fyrsta Landsbankadeildarliðið til að skila fjárhagsgögnum í ár.  Áður höfðu tvö félög í 1. deild skilað sínum gögnum - Njarðvík og Stjarnan.

Von er á gögnum frá fleiri félögum í dag og næstu daga, enda undirgangast alls 24 félög leyfiskerfið, þ.e. öll félög í Landsbankadeild karla og 1. deild karla. 

Fylgst verður með gangi mála hér á ksi.is.