• mið. 27. feb. 2008
  • Leyfiskerfi

Fjárhagsleg gögn ÍBV komin í hús

ÍBV
ibv_3

Fjárhagsleg fylgigögn ÍBV með umsókn félagsins um þátttökuleyfi í 1. deild karla 2008 hafa nú borist KSÍ með póstinum.  Leyfisstjórn getur staðfest að þau voru póstlögð mánudaginn 25. febrúar, innan tímamarka.

Stærsta atriðið í fjárhagslegum leyfisgögnum er að félögin verða að vera með fulla áritun endurskoðanda á ársreikningi sínum.

Gögn KA eru væntanleg með póstinum, en að auki hafa Haukar og Fjarðabyggð ekki skilað sínum fjárhagsgögnum.  Í Landsbankadeild eiga Grindvíkingar eftir að skila, en von er á þeim gögnum í dag, miðvikudag.