• mán. 05. jan. 2009
  • Lög og reglugerðir

Vegna samningsskyldu leikmanna í Landsbankadeild karla

Dansinn stiginn í leik Þróttar og Keflavíkur í Landsbankadeild karla 2008
Trottur_Keflavik_LD_karla_2008

Vert er að minna á ákvæði um samningsskyldu leikmanna í Landsbankadeild karla eins og fram kemur í grein 23.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót.  Ákvæði þetta varð virkt þann 1. janúar 2009 og verða þá allir leikmenn sem taka þátt í opinberum knattspyrnuleikjum í meistaraflokki með félagi sem á sæti í Landsbankadeild karla að vera á samningi.  Leikmenn 2. aldursflokks eða yngri eru undanskildir ákvæði þessu. 

23.4     Samningsskylda

23.4.1  Allir leikmenn sem taka þátt í opinberum knattspyrnuleikjum í meistaraflokki með félagi sem á sæti í Landsbankadeild karla skulu vera á samningi samkvæmt reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga.  Leikmenn 2. aldursflokks eða yngri eru undanskildir ákvæði þessu.   

23.4.2  Noti félag leikmann sem hefur keppnisleyfi en uppfyllir ekki skilyrði greinar 23.4.1 skal félaginu gefinn vikufrestur til að gera nauðsynlegar úrbætur.  Að öðrum kosti skal málinu vísað til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ sem skal beita sektum eða eftir atvikum útilokun leikmannsins frá keppni þar til úrbætur hafa verið gerðar.

Ef frekari upplýsinga er óskað þá vinsamlegast hafið samband við framkvæmdastjóra.