• mið. 13. jan. 2010
  • Leyfiskerfi

Grænn litur er vænn litur ...

Breiðablik og Njarðvík leika í grænum búningum
breidablik-njardvik

Breiðablik og Njarðvík, sem bæði leika í grænum búningum, hafa skilað leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, fyrir keppnistímabilið 2010.  Þar með hafa alls 11 félög af 24 skilað, eða tæplega helmingur allra leyfisumsækjenda.  Lokaskiladagur þessara gagna er föstudaginn 15. janúar, þannig að leyfisgögnum mun væntanlega rigna yfir leyfisstjórn á næstu dögum.  Fjárhagslegum gögnum er síðan skilað fyrir 20. febrúar.

Þau gögn sem leyfisumsækjendur eiga að skila fyrir 15. janúar snúa að knattspyrnulegum þáttum (þjálfun og uppeldi ungra leikmanna), mannvirkjaþáttum (eignarréttur aðstöðu eða samningur um notkun, aðstaða áhorfenda, fjölmiðla og iðkenda), starfsfólki og stjórnun (starfslýsingar, ráðningarsamningar, menntun og reynsla) og lagalegum forsendum (lagalegur grundvöllur félags).

Minnt er á neðangreint úr leyfisreglugerðinni:

b) Tímamörk ekki uppfyllt.

Ef leyfisumsækjandi uppfyllir ekki sett tímamörk um framlagningu leyfisgagna skal hann sæta viðurlögum.  Við ákvörðun þeirra skal taka mið af því hve alvarlegt brotið er.  Eftirfarandi viðurlögum er hægt að beita:

-  Viðvörun og sekt; við fyrsta brot skal beita dagsektum að upphæð kr 1.500 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 30.000.

-  Áminning og sekt; við ítrekað brot skal skal beita dagsektum að upphæð kr 3.000 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 60.000.

-  Stigatap; við alvarlegt og ítrekað brot er jafnframt heimilt að draga allt að 3 stig frá félaginu í deildarkeppninni.

Ítrekunarkvöð fellur niður ef tímamörk hafa verið uppfyllt í 3 ár samfleytt.