• mið. 24. feb. 2010
  • Leyfiskerfi

Pósturinn kominn frá Vestmannaeyjum

ÍBV
ibv_3

Leyfisstjórn getur nú staðfest móttöku fjárhagslegra leyfisgagna frá ÍBV.  Stimpillinn frá Pósthúsinu í Vestmannaeyjum sýnir sendingardaginn 22. febrúar og því teljast Eyjamenn hafa skilað innan settra tímamarka. 

Gögn KA ættu einnig að berast í dag, en þau voru póstlögð á mánudag.  Tvö félög, Fjölnir og Þróttur, skila gögnum síðar í vikunni og mega því búast við dagsektum samkvæmt greininni hér að neðan.

Fjárhagsgögnum fylgja fjölmargar staðfestingar, s.s. á því að engin vanskil séu við leikmenn, þjálfara og aðra starfsmenn, sem og við önnur knattspyrnufélög vegna félagaskipta.  Grunnskylda er þó að félög skili endurskoðuðum og staðfestum ársreikningi, með fullri áritun endurskoðanda.

Minnt er á neðangreint ákvæði í leyfisreglugerð.


b) Tímamörk ekki uppfyllt.

Ef leyfisumsækjandi uppfyllir ekki sett tímamörk um framlagningu leyfisgagna skal hann sæta viðurlögum.  Við ákvörðun þeirra skal taka mið af því hve alvarlegt brotið er.  Eftirfarandi viðurlögum er hægt að beita:

-  Viðvörun og sekt; við fyrsta brot skal beita dagsektum að upphæð kr 1.500 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 30.000.

-  Áminning og sekt; við ítrekað brot skal skal beita dagsektum að upphæð kr 3.000 fyrir hvern dag sem líður þangað til viðeigandi gögnum hefur verið skilað, að hámarki kr 60.000.

-  Stigatap; við alvarlegt og ítrekað brot er jafnframt heimilt að draga allt að 3 stig frá félaginu í deildarkeppninni.

          Ítrekunarkvöð fellur niður ef tímamörk hafa verið uppfyllt í 3 ár samfleytt.